Miðlun „áhersluatriða“ í málefnum eldri borgara

Áhersluatriði eldra fólks í komandi Alþingiskosningum
Stefna í fimm málaflokkum eldri borgara var einróma samþykkt á formannafundi LEB 13.3.2021. Plaggið verði notað til að miðla okkar boðskap sem víðast.

Miðlunarleiðir
Hvernig er hægt að koma skilaboðum á framfæri við frambjóðendur og stjórnmálaflokkana fyrir komandi kosningar?

1.  Frá LEB til grasrótarinnar

  1. Dreifa stefnuplagginu út til aðildarfélaganna sem komi þeim á framfæri við félaga sína ( A4 blað með stefnunni auk blaðs með nánari útlistun fyrir félagann sem er reiðubúinn að tala fyrir stefnunni).
  2. Félagar mæti á framboðsfundi, flokksráðsfundi og aðra stjórnmálafundi, tali fyrir stefnunni og afhendi frambjóðendum (þarf ekki að binda sig við „eigin“ flokk).
  3. Félögin haldi almenna fundi og bjóði frambjóðendum kjördæmisins að mæta til að kynna sín stefnumál og félögin kynna þeim stefnu okkar.
  4. Félög/félagar kynni sveitarstjórnarmönnum stefnuna með ósk um að þeir tali fyrir málinu í flokksapparötum sínum (Margir sveitarstjórnarmenn hafa bein tengsl við stjórnmálaflokkana).
  5. Félögin hvött til að skrifa greinar um málið í staðbundin blöð (má vera dálítið staðlað frá LEB).
  6. Hvetja eldri borgara sem ekki eru með í félagsskap okkar til að vera með til að styrkja hópinn.
  7. Leggja ríka áherslu á að við tölum einum rómi, út frá stefnunni.

2.  Beint frá LEB

  1. LEB skipuleggi greinaskrif um stefnuna, auglýsi, sendi stjórnmálaflokkunum efni og komi fram í fjölmiðlum eftir atvikum.
  2. LEB fylgist vel með skrifum um málefni eldri borgara og leiðrétti rangfærslur hratt og örugglega.
  3. LEB verði í góðu samtali við verkalýðsforystuna (ASÍ, BSRB, BHM og e.t.v stærstu verkalýðsfélögin, VR og Eflingu).  

Hellu 6.4.2021

Stjórn FEBRANG

Scroll to Top