Hreyfing

Leikfimi er í Hvolnum á Hvolsvelli miðvikudaga og föstudaga kl. 14:00 og í litla salnum í íþróttahöllinni á Hellu mánudaga og fimmtudaga kl. 14. Leiðbeinandi er Drífa Nikulásdóttir, ÍAK einkaþjálfari. Þetta verkefni er á vegum sveitarfélaganna, liður í Heilsueflandi samfélagi.

Fótfráir Hellubúar er sjálfsprottinn gönguhópur, gengur alla daga frá Bogatúni 1 kl. 10:30. Hópurinn er alls ekki bundinn við Hellu, allir eldri borgarar og annað skemmtilegt fólk velkomið!

Boccia er keppnisíþrótt sem líkist keiluspili og bocca. Spilað er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli mánudaga kl. 10:10 og miðvikudaga kl. 10:50. Upplýsingar hjá Gunnari Marmundssyni, sími 8646192. Í íþróttahúsinu á Hellu mánudaga og miðvikudaga kl. 11:10. Upplýsingar hjá Þorsteini Ingvarssyni sími 8922205. 

Scroll to Top