Siðareglur FEBRANG

TILGANGUR SIÐAREGLNA ER AÐ

  • veita FEBRANG stuðning í veigamiklu hlutverki þess við að stuðla að almannaheill í samfélaginu.
  • upplýsa almenning um þau gildi sem móta starf FEBRANG og auka traust á starfi félagsins.
  • hvetja til gagnrýninnar og uppbyggjandi umræðu um starfsemina.
  • auka gagnsæi, efla góða stjórnarhætti og faglegt starf í þágu eldra fólks og alls almennings.
  • setja viðmið um breytni, fagmennsku og ábyrgð sem hvílir á starfsfólki, stjórnum og sjálfboðaliðum umfram lagalegar skyldur.

ÁBYRGÐ GAGNVART ALMENNINGI, FJÖLMIÐLUM OG SAMFÉLAGI

  • FEBRANG veitir áreiðanlegar og réttar upplýsingar sem skýra samhengi þess sem kynnt er hverju sinni. Þess skal gætt að notkun fræðilegra hugtaka og tölfræði séu aldrei villandi eða óaðgengileg almenningi.
  • FEBRANG starfar sjálfstætt að markmiðum sínum. Það hefur hagsmuni almennings og umbjóðenda sinna að leiðarljósi.
  • FEBRANG gætir þess að starf þess í þágu félagsmanna takmarkist ekki af skuldbindingum eða þrýstingi stjórnvalda eða annarra hagsmunaaðila.
  • FEBRANG hefur umhverfissjónarmið ávallt að leiðarljósi í rekstri sínum og sýnir með því gott fordæmi í umgengni við náttúru og samfélag.

ÁBYRGÐ GAGNVART SKJÓLSTÆÐINGUM, FÉLAGSMÖNNUM, NOTENDUM, UMBJÓÐENDUM OG STYRKTARAÐILUM

  • FEBRANG ber ábyrgð á starfi sínu og sýnir öllum virðingu og trúnað.
  • Gagnsæi um starfsemi FEBRANG skal tryggt og veittar skulu áreiðanlegar og skýrar upplýsingar um starfsemina.
  • FEBRANG mismunar ekki þeim sem þeir eiga í samskiptum við, hvorki á grunni þjóðernis, kyns, kynhneigðar, fötlunar, trúar, skoðana eða annars fjölbreytileika.
  • FEBRANG leitast við að styrkja mannlega reisn með því að beita sér gegn misvirðingu gagnvart manneskjum, þar á meðal einelti, kynbundinni- og kynferðislegri áreitni og ofbeldi.
  • FEBRANG misnotar hvorki stöðu sína né bregst trausti þeirra sem það á í samskiptum við.

ÁBYRGÐ STJÓRNA, STARFSFÓLKS OG SJÁLFBOÐALIÐA

  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar vinni af heilindum að markmiðum og tilgangi FEBRANG.
  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar nýta ekki trúnaðarupplýsingar í eiginhagsmunaskyni eða í þágu vina eða skyldmenna.
  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar virða störf annarra félaga og samtaka, sýna hver öðrum virðingu, samstarfsvilja og stuðning og stuðla að framgangi verkefna.

ÁBYRG FJÁRMÁL FEBRANG

  • Meðferð fjármuna skal vera samkvæmt viðurkenndum bókhalds- og reikningsskilavenjum og skoðun reikninga í höndum kjörinna skoðunarmanna eða endurskoðenda.
  • Upplýsingar um fjárhag og rekstur skulu vera gagnsæjar og settar fram á einfaldan og skýran máta.
  • Öll fjáröflun skal hafa skýr markmið og fara fram í samræmi við tilskilin leyfi. Áætlað kostnaðarhlutfall liggi fyrir áður en safnanir hefjast og er gert upp að söfnun lokinni.
  • FEBRANG gætir þess að tengjast ekki aðilum sem starfa í ósamræmi við tilgang og markmið þeirra.
  • FEBRANG aflar ekki fjár með nokkrum þeim hætti sem telja mætti siðferðilega vafasaman.
  • Stjórn og starfsfólk gætir ráðdeildar í daglegum rekstri og við meðferð fjármuna félagsins.

GILDISSVIÐ OG VIÐBRÖGÐ VIÐ BROTUM

  • Siðareglur þessar eru birtar á heimasíðu FEBRANG.Þær eiga við um alla sem taka að sér störf fyrir FEBRANG.
  • Stjórn FEBRANG tekur við ábendingum um brot á þessum siðareglum og bregst við þeim. Stjórnin úrskurðar í hverju tilfelli hvort um brot sé að ræða, telji hún tilefni til að fjalla um ábendingu um slíkt. Við meðferð mála skal gæta trúnaðar, meðalhófs og andmælaréttar.
  • Brjóti aðili tengdur FEBRANG gegn siðareglum þessum skal hann í samráði við stjórn FEBRANG bæta fyrir brotið eins og hægt er, leita sátta og birta eða leiðrétta viðeigandi upplýsingar eða gera aðra þá bragarbót sem þurfa þykir.
  • Þess skal gætt að sá sem leggur fram upplýsingar um ætlað brot á siðareglunum, beri ekki skaða af.

Þessar siðareglur eru samkvæmt siðareglum Almannaheilla, samtök þriðja geirans, sem LEB er aðili að. Sjá nánar: https://almannaheill.is/almannaheill/sidareglur/

Siðareglur LEB – Landssambands eldri borgara, sem samþykktar voru á landsfundi 2023 í Borgarnesi, gilda fyrir starfsemi LEB en eru einnig hugsaðar sem fyrirmynd fyrir starfsemi aðildarfélaga þess.

Samþykkt á stjórnarfundi FEBRANG 13.11.2023.

Scroll to Top