Hvað með félagsstarfið?

Stjórnin hélt fund í gær, 17.1.2022 og gekk frá auglýsingu sem á að birtast í Búkollu í þessari viku:

Góðir félagar í Félagi eldri borgara í Rangárvallasýslu (FEBRANG) og aðrir eldri borgarar! Því miður liggur allt félagsstarf niðri sem stendur vegna Covid. Þessar aðstæður eru mörgum erfiðar og hætta á að fólk einangrist til frambúðar. Það má ekki gerast.

Hvað er til ráða? 
Útivera og hreyfing er gulls ígildi. Síminn er gott samskiptatæki. Er ekki tilvalið að slá á þráðinn til gamals kunningja og rifja upp gömul prakkarastrik og skemmtilegar samverustundir, eða tala við einhvern sem þið getið búist að sé einmana?

Eflum félagið – Fjölgum félögum!
Félögum í FEBRANG fer fjölgandi, eru þó ekki nema um 30% fólks yfir sextugt í sýslunni. Svo geta allir gengið í félagið án tillits til aldurs. Það er hægt að gera á vefsíðunni febrang.net eða hringja í Þórunni Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra í síma 8925923. Þið sem eruð félagar nú þegar þekkið eflaust fólk sem ástæða væri til að hnippa í til að gerast félagar. 

Lifum lífinu 
Það eru forréttindi að ná þeim aldri að teljast eldri borgari. Lifa og njóta ætti að vera kjörorð okkar eldri.

Fylgist með upplýsingum frá félaginu
Félagið er með síðu á Facebook sem heitir FEBRANG-Félag eldri borgara í Rangárvallasýslu og vefsíðu sem heitir febrang.net Þar reynum við að koma upplýsingum á framfæri um félagsstarfið og svo auglýsum við í Búkollu þegar tilefni er til.

Munum að þvo og spritta hendur, munum að það er grímuskylda! 

Með baráttukveðjum

Stjórn FEBRANG

Scroll to Top