1 Eldra fólk fái að vinna
eins og það vill
Frítekjumörk vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum verði 100.000 kr. Eftirlauna fólk fái að vinna eins og því sýnist án skerðinga í almannatryggingakerfinu og njóti afraksturs vinnu sinnar eins og aðrir. Lágmarkslífeyrir verði aldrei lægri en umsamin lágmarkslaun á almennum vinnumarkaði. Ellilífeyrir og frítekjumörk hækki árlega samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands.
2 Starfslok miðist við færni
en ekki aldur
Það er réttlætismál að eldra fólk fái að miða starfslok sín við áhuga, færni og getu en þurfi ekki að hætta virkri þátttöku í atvinnulífinu eingöngu vegna aldurs. Aldursmismunun er bönnuð samkvæmt stjórnarskrá. Skorað er á alþingismenn að fella úr allri lagasetningu ákvæði um aldurstengdar viðmiðanir, en leggja þess í stað áherslu á þekkingu, reynslu, hæfni og menntun fólks óháð aldri.
3 Heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar
Til að eftirlaunafólk geti lifað heima hjá sér með reisn, er lagt til að ríki og sveitarfélög stórauki samvinnu sína með það að markmiði að heilsu gæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar. Öll fjárframlög taki mið af þessu. Heilsugæslan nálgist eldra fólk fyrr á lífsleiðinni með samhæfðri teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga og félagsþjónustu sveitarfélaga og haldi því sambandi. Velferðartækni ætti að vera mikilvægur þáttur í öryggi í heimahúsum eldra fólks. Þáttur aðstandenda verði metinn með umönnunarálagi. Stofnun öldrunargeðdeildar er forgangsmál.
4 Millistig milli heimilis og hjúkrunarheimilis
Ljóst er að búseta á eigin heimili hentar ekki öllum, þó þeir þurfi ekki dvöl á hjúkrunarheimili. Búsetuúrræði fyrir eldra fólk eru hins vegar alltof fá breytt. Það vantar millistig, milli búsetu á eigin heimili og hjúkrunarheimili. Brýnt er að finna fjölbreytt úrræði til að mæta þessari þörf.
Fjármunum Framkvæmdasjóðs aldraðra verði einungis varið til byggingar stofnana fyrir aldraða og til að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu við þá eins og kveðið er á um í lögum.
5 Ein lög í stað margra lagabálka
Um málefni sem varða eldra fólk sérstaklega gilda of margir og of sundur leitir lagabálkar þar á meðal almannatryggingalögin. Einfalda þarf laga umhverfið og gera það skilvirkara meðal annars með því að skilja að lög um eldra fólk og öryrkja. Tryggja þarf aðkomu eldri borgara að þeirri endur skoðun.
LEB – Landssamband eldri borgara | Ármúla 6, 108 Reykjavík | leb@leb.is | www.leb.is | Sími: 567-7111